UPPHAF OG STOFNUN


Voriđ 1978 hafđi Ragnar Björnsson kallađ saman ţá Garđar Ingvarsson, hagfrćđing, Gylfa Ţ. Gíslason, prófessor og fyrrv. Menntamálaráđherra, Árna Bergmann, ritstjóra og sr. Ólaf Skúlason, ţáverandi sóknarprest í Bústađasókn, síđar biskup Íslands, til ađ rćđa viđ ţá hugmynd sína um stofnun tónlistarskóla í Bústađahverfi eđa í nágrenni ţess.  Hann taldi ţörf á tónlistarskóla í austurhluta borgarinnar, sem yrđi í göngufćri viđ heimili og skóla barna á grunnskólaaldri og góđri nálćgđ viđ strćtisvagna víđsvegar ađ úr borginni fyrir nemendur í framhaldsdeildum.  Leyfi fyrir stofnun tónlistarskóla sem starfađi eftir lögum um sjálfseignarstofnun fékkst frá menntamála- og Borgaryfirvöldum. Í skólanefnd voru samţykktir fyrrnefndir Garđar Ingvarsson, formađur, Árni Bergmann, ritari og međstjórnendur Gylfi Ţ. Gíslason og Ólafur Skúlason.  Skólanefndin réđi Ragnar Björnsson skólastjóra.  Skólanefndin var óbreytt í tćp 26 ár. Ragnar var skólastjóri skólans til dauđadags, 10.10. 1998. Viđ stjórn Skólans tók Sigrún Björnsdóttir. Stýrđi hún skólanum allt til hausts 2004, ţegar núverandi skólastjóri tók viđ.

        Reykjavíkurborg studdi skólann fyrstu skrefin međ ţví ađ veita honum ókeypis afnot af húsvarđaríbúđ, sem var 2ja herbergja súđaríbúđ á efstu hćđ Breiđagerđisskóla. Einnig fékk skólinn til eignar skólaborđ og stóla sem almenna skólakerfi var hćtt ađ nota. Fyrsti flygillinn fékkst ódýrt úr Lídó, o.s.frv.
Frá upphafi var ţađ hugsjón Ragnars ađ stofna tónlistarskóla ţar sem nemendur fengju ađ öllu leyti fyrsta flokks nám, sambćrilegt viđ ţađ besta sem hćgt vćri ađ fá í landinu. Ţetta tókst Ragnari međ ţví ađ fá strax til liđs viđ sig kennara úr röđum okkar bestu listamanna á ţeim tíma og alla tíđ síđan.
Skólinn stćkkađi mjög fljótt. Flutti eftir tvö ár í leiguhúsnćđi, á efstu hćđ í Ármúla 44, á horni Grensásvegar og Ármúla. Ţar var skólinn til húsa hátt í tíu ár. Ţá ţurfti aftur ađ stćkka og í ţetta sinn keypti skólinn efstu hćđina á Grensásvegi 3, og ţótti mörgum mikiđ í ráđist. Og enn liđu nćrri tíu ár og skólinn ađ sprengja utan af sér húsnćđiđ.  Ţá var brugđiđ á ţađ ráđ ađ kaupa efstu hćđina á Grensásvegi 5, sem viđbót viđ skólahúsnćđiđ.
       Skólinn hefur nú yfir ađ ráđa 13 kennslustofum, allar nema ein búnar flyglum. Tónleikasalur er í nýju álmunni og tekur hann um 150 manns í sćti. Nótnasafn skólans hefur vaxiđ mikiđ síđustu ár, má ţađ ađ miklu leyti ţakka gjöfum frá fyrrum kennurum skólans og ćttingjum ţeirra. Má ţar nefna Ragnar Björnsson, Sigurđ Demetz Franzson, Jón Sigurbjörnsson, ćttingja Rögnvaldar Sigurjónssonar og ćttingja Jóns Sen.
       En ţađ sem gerir tónlistarskóla góđan eru kennararnir. Viđ höfum á ađ skipa einvala liđi kennara sem hafa mikla reynslu, bćđi sem kennarar og flytjendur.






|  Nýi tónlistarskólinn 2004 | postur@nyitonlistarskolinn.is | sími: 553-9210 | fax: 553-9211